MG Fasteignasala sími 588 1400 kynna í einkasölu:
MG Fasteignasala kynnir eignina Kjarrmói 14, 805 Selfoss.
1 hektara eignarlóð (10.000 fm). Hitaveita. Nánari upplýsingar veitir Margrét Guðjónsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8669140, tölvupóstur
[email protected].
Fallegt þriggja herbergja sumarhús á 1 hektara eignarlóð. Húsið er tengt við hitaveitu. Heitur pottur á stórri timburverönd.
Húsið er skráð hjá HMS sem 52,9 fm sumarbústaður og 12,1 fm geymsla. Að auki er óskráð svefnloft yfir hluta hússins.
Fastanúmer eignar: 227-0062.
Húsið er byggt árið 1999.
Lýsing: Húsið skiptist í forstofu, búr, eldhús með opið rými inni í stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi auk svefnlofts yfir hluta hússins. Útgengt út á viðarpall úr opnu alrými stofu og eldhúss.
Á lóðinni er önnur minni geymsla svo og gróðurhús.
Notalegur og vel staðsettur sumarbústaður á 1 hektara eignarlóð í rólegu og eftirsóttu frístundahverfi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lóðin er vaxin gróðri og trjám sem skapa mikið skjól, næði og einstakt náttúrulegt umhverfi. Eignin stendur innarlega á frístundasvæði sem keyrt er að frá Biskupstungnabraut.
Greitt er í félag sumarhúsaeiganda í Kjarrmóum kr. 30.000 á ári.
Góð aðkoma og næg bílastæði.Í næsta nágrenni eru vinsælir áfangastaðir svo sem Sólheimar, Skálholt, Reykholt og Laugarás.
Þetta er kjörin eign fyrir þá sem vilja rúmgóða lóð, gróið land og einstakt næði. Með nánari upplýsingar hafið samband við MG Fasteignasölu sími 588 1400, [email protected] eða Margréti Guðjónsdóttur lögmann og löggiltan fasteignasala í síma 866 9140.